Forgarður Helvítis - Án þess að Depla Auga (Without Blinking an Eye)

 

Mig langar til að verða hetja
að geta vaðið táradalina
án þess að ljósdepill sjáist í auga
Geta haldið salnum klökkum
án þess að bregða tóni
Mig langar til að geta fagnað
hverjum blóðvelli
án þess að leggja merkingu
í sársauka þeirra sem lifa missinn
Heldur vil ég finna guðina miklast
yfir verkum mínum
þar sem ég geng meðal þeirra nafnlausu
og gef
af tóminu